Fréttir

10.12.2009

Enn eitt dómsmálið gegn Tinna: Fyrir rétti í Belgíu og kannski mannréttindadómstólinn

Frétt af Pressan.is, 10. desember 2009

Réttarhöld hófust í dag í Belgíu þar sem enn ein tilraunin er gerð til að fá bók Hergé um Tinna í Kongó bannaða. Sá sem sækir málið segir að tapi hann málinu þar fari hann með það fyrir mannréttindadómstólinn.

Það er Bienvenu MButu sem fer fram á bann á útgáfu bókarinnar um ævintýri blaðamannsins unga í Kongó.

"Þegar þú lest bókina og sérstaklega þegar Tinni hrópar á Kongóbúana að þeir séu latir þá er það hreinlega óásættanlegt. Þessi saga er skrifuð til að sýna fólki á vesturlöndum að íbúar Kongó séu dýr og hreinræktaðir hálfvitar."

Höfundur Tinnabókanna var Belginn Hergé en ævintýrið um Tinna í Kongó birtist fyrst á barnasíðum belgísks dagsblaðs á árunum 1930 og 1931. Hún kom út endurteiknuð og skrifuð á bók 1946 og aftur endurskrifuð 1975.

Hergé var ungur að árum þegar hann gerði Tinna í Kongó og hermir sagan að hann hafi síðar sagt að hann hefði verið ungur og vitlaus þegar hann gerið þá bók og hann sæi eftir því.

Þetta er langt í frá fyrsta tilraunin til að fá útgáfu Tinna í Kongó bannaða. Þannig hafa dýraverndarsinnar mótmælt því að Tinni sprengi upp flóðhest með dýnamíti, sem varð reyndar til að sá kafli hvarf úr síðari útgáfum.  Fyrir  nokkrum misserum reyndi svo sænskur maður að fá bókina tekna úr sölu þar sem hún ýtti undir kynþáttafordóma en þeirri kröfu var hafnað.

Skrifað 10.12.2009 kl. 17:44 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

4.11.2009

Tinni á hvíta tjaldið 2011

Frétt af Vísi.is 2. nóvember 2009

Fyrsta myndin í Tinnasyrpu Stev­ens Spielberg verður ekki frumsýnd fyrr en í október árið 2011. Hún byggir að mestu á bókinni Leyndardómi einhyrningsins en að auki á atburðum úr Krabbanum með gylltu klærnar. Útlit myndarinnar verður byltingarkennt, einhvers konar sambland af leiknu efni og teiknimyndum. Leikaravalið hefur spurst út. Jamie Bell, strákurinn úr Billy Elliot, leikur Tinna, Andy "Gollum" Serkis leikur Kolbein og Simon Pegg og Nick Frost úr Shaun of the Dead leika Skaftana. Næsta Tinnamynd á svo að koma 2013 og byggir hún á bókinni Fjársjóði Rögnvaldar rauða. Henni verður leikstýrt af Peter Jackson.

Skrifað 4.11.2009 kl. 18:27 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.9.2009

Tinna stefnt fyrir kynþáttafordóma

Frétt úr Morgunblaðinu 1. september 2009

Kongóskur endurskoðandi hyggst stefna Tinna fyrir kynþáttafordóma, hann sakar jafnframt belgíska dómara um að reyna að fela málið til að vernda þessa dáðu þjóðarhetju Belgíu.

Bienvenu Mbutu Mondondo heitir endurskoðandinn sem segir að teiknimyndasaga Hergé, Tinni í Kongó, sé áróður nýlendustefnu og stuðli að kynþáttafordómum og útlendingahatri. "Litli (svarti) aðstoðarmaður Tinna er sýndur vera vitlaus og hæfileikalaus. Það fær fólk til að trúa því að svart fólk hafi ekki þróast," segir Mondondo.

Fyrir tveimur árum hóf Mondondo málsókn í Belgíu og krafðist einnar evru í táknrænar skaðabætur frá útgefanda Tinna, Moulinsart og krafðist þess jafnframt að bókin yrði tekin af markaðnum. Engin viðbrögð hafa komið úr belgíska dómskerfinu og beiðni Mondondo var úrskurðuð ótímabær þó rannsókn vegna hennar hafi nú verið í gangi í tvö ár.

Lögfræðingur Modondo segir að þögnin hafi stjórnmálalegan undirtón: "Ráðist er gegn tákni Belgíu," segir Claude Ndjakanyi lögfræðingur. Hann segist munu fara í samskonar málaferli í Frakklandi og jafnvel fara "alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu ef nauðsyn krefur."

Skrifað 2.9.2009 kl. 21:13 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.2.2009

Í tilefni af 80 ára afmæli Tinna

Frétt af vef Borgarbókasafnsins 17. febrúar 2009

Dularfullir atburðir á Borgarbókasafni

Í tilefni af áttræðisafmæli Tinna standa Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskólinn í Reykjavík fyrir myndasögusamkeppni fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára á vormánuðum 2009.

Í tengslum við samkeppnina verður haldin sýning á þeim verkum sem hljóta viðurkenningu, auk valinna verka annarra þátttakenda.

Frestur til að skila verkum er til 2. maí en sýningin verður opnuð laugardaginn 6. júní á Borgarbókasafninu.

Veitt verða ein verðlaun en að auki hljóta fimm verk viðurkenningu.

Hámarkslengd efnis eru fjögur A4 blöð eða tvö A3 blöð (öðru megin) og eru þátttakendur beðnir að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu.

Vinnuaðferðin er algerlega frjáls en þema samkeppninnar og sýningarinnar er: "Dularfullur atburður" og er það hugsað til heiðurs hinni áttræðu myndasöguhetju, sem einmitt fæst við lausn á dularfullum atburðum í ævintýrum sínum.

Verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og / eða tengjast myndasögum á einhvern hátt.

Þátttakendur eru beðnir að skila verkunum inn á Borgarbókasafnið, aðalsafn, Tryggvagötu 15, í umbúðum merktum: "Dularfullur atburður", myndasögur 2009. Vinsamlega athugið að láta fylgja fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og tölvupóstfang.

Nánari upplýsingar veita Úlfhildur Dagsdóttir (ulfhildur.dagsdottir@reykjavik.is) og Þorbjörg Karlsdóttir (thorbjorg.karlsdottir@reykjavik.is), eða í síma: 4116100.

Plakat myndasögusamkeppninnar (PDF 0.51MB)

Skrifað 26.2.2009 kl. 19:23 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

9.2.2009

Fréttir um Tinna kvikmynd

Eins og eflaust allir aðdáendur Tinna vita, hefur staðið til í allnokkur ár að gera kvikmynd um hetjuna og nú fer loksins að hylla undir framleiðslu þeirrar myndar en talið er að hún verði frumsýnd árið 2011. Samkvæmt heimildum er gert ráð fyrir að myndin verði tölvuteiknuð og að notast verði við sambærilega hreyfihermitækni og kvikmyndirnar Beowulf og Monster House voru gerðar með. Ætli sú tækni sé ekki sambærileg við það hvernig til dæmis Gollum í Hringadróttinssögu var unninn?

  

Myndin verður byggð á bókunum um Leyndardóm Einhyrningsins og Fjársjóð Rögnvaldar Rauða og mun væntanlega bera nafnið; The Adventures of Tintin: Secret of the Unicorn en sjálfur Steven Spielberg mun annast leikstjórn hennar. Talið er að Tinnamyndin verði sú fyrsta í þríleik um hetjuna og sögusagnir eru uppi um að Peter Jackson komi til með að leikstýra annari myndinni en hann er einmitt einn framleiðanda myndanna. Handritið að myndinni skrifa þeir Steven Moffat, Edgar Wright og Joe Cornish en Wright er helst kunnur fyrir að hafa skrifað handritið að, og leikstýrt, kvikmyndunum Hot Fuzz og Shaun of the Dead. Steven Moffat er hins vegar kunnastur fyrir handritin að Dr. Who þáttunum.

Breski leikarinn Jamie Bell hefur verið ráðinn í aðalhlutverkið og leikur því sjálfan Tinna en hann er helst kunnur fyrir að leika fimleikastrákinn Bill Elliot í samnefndri mynd. Andy Serkins leikur Kolbein kaftein en hann lék einmitt áðurnefndan Gollum í Hringadróttinssögu, Toby Jones fer með hlutverk Vandráðs en þeir Simon Pegg og Nick Frost munu annast þá Skapta og Skafta. Skúrkinn sjálfan Rögnvald Rauða mun breski leikarinn Daniel Craig leika en hann er að sjálfsögðu þekktastur fyrir að hafa leikið sjálfan njósnara hennar hátignar í undanförnum tveimur myndum um James Bond.

Tinni hefur áður verið kvikmyndaður en árið 1961 var gerð myndin Et le mystere de la toison dor í leikstjórn Jean-Jacques Vierne og var hún einnig lauslega byggð á sögunni um Leyndardóm Einhyrningsins. Þremur árum seinna var svo gerð myndin Tintin et les oranges bleues (Tinni og bláu appelsínurnar) þar sem Philippe Condroyer annaðist leikstjórnina en í báðum þessum kvikmyndum sá franski leikarinn Jean-Pierre Talbot um hlutverk Tinna.

Skrifað 9.2.2009 kl. 20:22 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.3.2008

Útgefandi Tinnabókanna látinn

Frétt úr Morgunblaðinu 21. mars 2008

Belgíski útgefandinn Raymond Leblanc, lést í dag 92 ára að aldri. Leblanc er maðurinn á bak við vinsældir Tinnabókanna en hann sannfærði listamanninn Georges Remithe (Hergé) sem var höfundur Tinna  til þess að halda áfram að teikna Tinna og félaga á tímum seinni heimstyrjaldarinnar.

Fyrsta teiknimyndasagan um blaðamanninn Tinna kom fram í Belgíu í janúar árið 1929. Var það útgáfufélag Leblanc, Lombard sem gaf bækurnar út en árið 1986 seldi Leblanc útgáfufélagið til franska útgáfufélagsins Media-Participations.

Í viðtali við dagblaðið Times í maí í fyrra greindi Lombard frá því að Tinni hefði selst í yfir 200 milljónum eintaka og verið þýddur á 60 tungumál.

Skrifað 21.3.2008 kl. 21:42 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

10.2.2008

Alltaf eitthvað smávegis að gerast

Það lítur ekki út fyrir að verið sé að vinna mikið að þessari síðu en það er þó samt ekki þannig. Reyndar gerast hlutirnir aðallega um helgar en koma þó stöðugt inn þótt ekki sé í mjög miklum mæli. Mikil vinna liggur á bak við uppsetningu á efninu enda mikið af myndum, sem safnað er saman úr ýmsum áttum, bæði af Netinu auk alls þess sem skannað er inn.

Nú er að mestu búið að setja inn kynningar á aðalpersónum, auk þess sem einnig hafa verið kynntar til sögunnar um það bil 100 aukapersónur sem þó er ekki tæmandi listi. Býst við að lítilega eigi eftir að bætast í þann hóp. Þá er búið að setja inn mistök úr fyrstu 14 bókunum (sjá Tinna-bækurnar/hver bók fyrir sig) og næsta mál er að klára það. Næst yrði líklega gengið frá söguþræði hverrar bókar fyrir sig auk þess sem bætt verður við öllum þeim fróðleik sem fyrirfinnst um hverja bók en það er frekar tímafrekt verk.

Sé að einhver umferð er hér á hverjum degi (teljarinn segir frá 4 og upp í ca. 15 manns á dag) og gestir mættu gjarnan tjá sig eitthvað í gestabókina.
 

Skrifað 10.2.2008 kl. 11:18 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.1.2008

Tinni hættir að tala arabísku

Frétt úr Morgunblaðinu 9. janúar 2008

Í ævintýrum sínum kemur Tinni reglulega við í Mið-Austurlöndum. Fjórar af bókunum 22 gerast þar að mestu leyti; Vindlar Faraós, Krabbinn með gylltu klærnar, Svarta gullið og Kolafarmurinn. Ævintýri hugprúða fréttamannsins hafa verið afar vinsæl í þessum löndum í marga áratugi, þrátt fyrir að höfundur þeirra, Hergé, hafi stundum verið gagnrýndur fyrir að teikna araba á niðrandi hátt.

Nú hefur egypska forlagið Dar al-Maaref, sem farið hefur með útgáfuréttinn á arabísku í þrjá áratugi, sagt upp samningnum við belgíska forlagið Casterman, móðurforlag Tinnabókanna. Talið er að opinber ritskoðun sé ástæðan, þótt forlagið hafi ekki viljað tjá sig um málið. Þá hefur stærstu frönsku bókabúð Egyptalands jafnframt verið bannað að flytja inn og selja Kolafarminn. Í þeirri bók berjast Tinni og Kolbeinn kafteinn við arabíska þrælasala.
Þrátt fyrir opinbera óvild í garð Tinnabókanna í arabaheiminum eru ólöglegar skopstælingar sagnanna vinsælar á arabísku. Þar á meðal eru bækurnar Tinni í Líbanon og Tinni í Írak.

Skrifað 11.1.2008 kl. 22:24 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.12.2007

Jólakveðjur

Tinni & félagar óskar lesendum þessarar síðu gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári og minnir enn og aftur á að efni á síðuna kemur smám saman með tíð og tíma.

Skrifað 23.12.2007 kl. 10:45 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

15.11.2007

Tinni í Sovétríkjunum loksins á íslensku

Jæja, nú fer loksins eitthvað að bætast meira hér inn þó svo að það komi nú ekki beint á færibandi en heilmikið af efni er samt í vinnslu.

Það sem helst er í fréttum þessa dagana er það að fyrsta eiginlega Tinna-bókin, Tinni í Sovétríkjunum, er nú loksins að koma út á íslensku 36 árum eftir að hann kom fyrst fyrir sjónir íslenskra lesenda. Sagan kom fyrst út árið 1930 er Hergé var 23 ára gamall og hafði afar róttækar skoðanir á heimsmálunum enda er þessi fyrsta saga ákaflega pólítísk ádeila á kommúnískt stjórnarfar. Hún var því ekki gefin út í mörgum löndum enda átti sagan í sjálfu sér lítið erindi til þess markhóps sem myndasögur áttu að höfða til á þessum árum. Í dag þykir hún hins vegar sígild en það er sjálfsagt ein af þeim ástæðum sem hún er loksins gefin út hér á landi. Þá skipti Fjölvaútgáfan nýverið um eigendur og nýjum eigendum fannst vel við hæfi að gefa út þessa fyrstu Tinnabók í tilefni þess. Sagan var aldrei endurteiknuð og lituð líkt og aðrar Tinnasögur og er því sú eina af elstu sögunum sem er upprunaleg.

Miklu nánari og ítarlegri umfjöllun um Tinna í Sovétríkjunum mun koma hér með tíð og tíma en eins og margoft hefur komið fram er mikið af efni í vinnslu.

Hvet alla til að taka þátt í skoðanakönnunina sem komin er upp hér á hægri hönd.

Skrifað 15.11.2007 kl. 23:26 af

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

1.9.2007

Jæja...

Jæja, þá er kominn september, haustið því á næsta leyti og nú fer vonandi að myndast næði til að vinna eitthvað í þessari síðu. Sumarmánuðurnir eðlilega uppteknir við annað en vonandi miklu bjartari tímar framundan.

Skrifað 1.9.2007 kl. 9:32 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.5.2007

TINNI

Hér með hefur verið opnuð heimasíða sem fyrst og fremst er ætlað að fjalla um belgísku teiknimyndahetjuna Tinna og efni sem tengist honum. Þegar að fram líða stundir er ætlunin að setja hér inn ýmislegt fróðlegt er varðar höfund hans Hergé, umfjallanir um bækur hans um Tinna og í rauninni bara allt það er tengist honum á einhvern hátt. Heimasíðu þessari er ekki að neinu leyti ætlað að fjalla um bækurnar um Tinna á bókmennta- eða fræðilegan hátt heldur er henni fyrst og fremst ætlað það hlutverk að vera aðdáendasíða þar sem gestir hennar geta lesið sér til um hetjuna sína sér til gamans. Hvet alla þá sem kíkja hér inn til að rita nafn sitt í gestabókina og/eða tjá sig á einhvern hátt um hugmyndir og efni með álitum sínum.

Skrifað 17.5.2007 kl. 23:05 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.5.2007

Ýmislegt

Efni á þessa síðu er í vinnslu og verður smám saman sett inn

Skrifað 17.5.2007 kl. 23:02 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu